141. fundur 09. apríl 2026 kl. 15:00 - 17:20 Ráðhús
Nefndarmenn
  • Auðunn Steinn Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnhildur Haraldsdóttir aðalmaður
  • Jón Gíslason aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Í upphafi fundar lagði formaður byggðarráðs fram tillögu um að einu máli um ástand vegna vegna vatnsveðurs yrði bætt við dagskrá fundarins undir lið 11. Byggðarráð samþykkti tillöguna samhljóða.

Dagskrá fundarins

1. Uppgræðsla á Eyvindastaðaheiði

Guðmundur Ögmundsson frá Landsvirkjun kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir uppgræðsluverkefni Landsvirkjunar á Eyvindastaðaheiði. Byggðarráð þakkar Guðmundi fyrir áhugaverða og fræðandi kynningu.

2. Húsnæðisáætlun Húnabyggðar

Börkur Þór Óttósson og Elísa Ýr Sverrisdóttir komu inn á fundinn og fóru yfir uppfærða húsnæðisáætlun Húnabyggðar fyrir árið 2026. byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3. Málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Sara Lind Kristjánsdóttir komu inn á fundinn og fóru yfir málefni fólks með fötlun á árinu 2025 og stöðuna það sem af er ársins 2026.

4. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Húnabyggð

Lögð fram til kynningar uppfærð samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Húnabyggð og byggðarráð vísar henni til umfjöllunar í umhverfisnefnd Húnabyggðar.

5. Brú milli byggða – aðgengi barna að íþróttum

Húnabyggð hefur fengið styrk frá valnefnd um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða upp á fimm milljónir króna. Byggðarráð fagnar þessu enda eru akstursmál með ungmenni vegna íþróttaiðkunar umfangsmikil fyrir íbúa sveitarfélagsins. Styrkurinn verður notaður til áframhaldandi tilrauna með þjónustuakstur ungmenna í sveitarfélaginu.

6. Viðauki I við skiptayfirlýsingu

Lagt fram til kynningar umboð til handa sveitarstjóra sveitarfélagsins Skagastrandar til að selja fasteignina Sæborg sem er að Ægisgrund 14, Skagaströnd.

7. Söguupplifun - samstarfsyfirlýsing

Lögð fram kynningar samstarfsyfirlýsing um „Stafræn sögumiðlun í Gamla bænum á Blönduósi“ við Sýndarveruleika ehf. sem þegar hefur fengið styrk vegna þessa verkefnis og er nú að sækja um áframhaldandi styrk hjá Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.

8. Stefna um opinbera þjónustu

Lagt fram til kynningar.

9. Ályktun tekin á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands

Lagt fram til kynningar.

10. Til umsagnar 582. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Lagt fram til kynningar.

11. Ástand vega vegna vatnsveðurs

Vegna vatnavaxta síðustu daga hafa vegir víða í dreifbýli Húnabyggðar látið verulega á sjá og eru sums staðar svo skemmdir að þeir geta skapað hættu fyrir vegfarendur. Af þeim sökum hafði skólaakstri verið frestað á meðan unnið væri að nauðsynlegum lagfæringum.

Byggðaráð Húnabyggðar telur ljóst að bregðast þarf hraðar við af hálfu Vegagerðarinnar og tryggja að framkvæmdir og viðhald fari fram með þeim hætti að öryggi vegfarenda sé ávallt tryggt. Það er brýnt að íbúar í dreifbýli geti sótt atvinnu, börn komist í skóla og að aðkoma viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs, sé tryggð við allar aðstæður.

Sveitarstjóra er falið að senda Vegagerðinni áskorun um úrbætur í samræmi við framangreint.

Getum við bætt efni þessarar síðu?