Formaður byggðarráðs bar upp tillögu í upphafi fundar um að liður 14 um uppgræðslu á Eyvindastaðaheiði yrði felldur niður og umfjöllun um þann lið yrði frestað. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Dagskrá fundarins
1. Samþykkt um fráveitu í Húnabyggðar
Uppfærð samþykkt Húnabyggðar um fráveitu lögð fram og samþykkt samhljóða með áorðnum breytingum af byggðarráði.
2. Erindi frá HMS vegna Brunavarna A-Hún
Lagt fram til kynningar erindi frá HMS sem ítrekar kröfu um að brunavarnaráætlun sveitarfélagsins verði kláruð. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga á eftir því við slökkviliðsstjóra Húnabyggðar að þetta verði klárað sem fyrst.
3. Uppgjör Flúðabakka ehf.
Lagður fram til kynningar samningur við Flúðabakka ehf. vegna uppgjör félagsins við sveitarfélagið á þeim ívilinum sem félagið fékk að upphæð 2.503.613kr. þegar sex íbúðir við Flúðabakka voru byggðar. Uppgjörið kemur í kjölfarið á því að félagið seldi íbúðirnar til Bríetar.
4. Félagsheimilið á Blönduósi ehf.
Fyrir fundinum lá fundargerð stjórnar Félagsheimilis Blönduós ehf. þar sem lagt er til við sveitarstjórn að félagið verði lagt niður. Byggðarráð vísar afgreiðslu málsins til sveitarstjórnar.
5. Tilboð í tómstundaakstur
SÞS vék af fundi undir þessum lið.
Lögð fram til kynningar verðkönnun meðal verktaka í tómstundaakstur. Sveitarstjóra falið að leita samninga miðað við umræður fundarins.
6. Styrkúthlutun Húsafriðunarsjóðs 2026
Lagt fram til kynningar að Húnabyggð hefur fengið 500.000kr. framlag frá Húsafriðunarsjóði til þess að endurgera Gústasjoppu.
Þá fengu Svínavatnskirkja 1.000.000kr., Undirfellskirkja 1.600.000kr. og Þingeyraklausturskirkja 800.000kr. frá Húsafriðunarsjóði í sömu úthlutun.
7. Lokaskýrsla um nýtingu glatvarma á Blönduósi
Lagt fram til kynningar.
8. Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
Lögð fram til til kynningar umsögn Húnabyggðar sem skilað var inn vegna málsins.
9. Varðandi áform umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlitið
Lagt fram til kynningar.
10. Opinber innkaup - bréf frá Samkeppniseftirlitinu
Lagt fram til kynningar.
11. Fundargerð 122. stjórnarfundar Norðurár
Lagt fram til kynningar.
12. Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
13. Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
