Jón Gíslason aðalmaður boðaði forföll og varamaður hans Elín Aradóttir einnig.
Formaður byggðarráðs bar upp tillögu í upphafi fundar um að liður 5 yrði felldur niður. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Dagskrá fundarins
1. Fráveitugjaldskrá Húnabyggðar
Lögð fram til kynningar ný uppfærð gjaldskrá fráveitu Húnabyggðar en vegna nýs útboðs á losun rotþróa í sveitarfélaginu er nauðsynlegt að uppfæra gjaldskrána. Núna er öllum sem hafa rotþrær sem ekki eru í eigu sveitarfélagsins skylt að tæma þær í gegnum skipulag sveitarfélagsins og borga tæmingagjald samkvæmt því. Gjaldskráin hvað varðar tæmingu gildir því núna fyrir rotþrær sem ekki eru í eigu sveiarfélagsins þ.e. sumarhús o.s.frv.
2. Persónuverndarstefna Húnabyggðar
Lögð fram til kynningar persónuverndarstefna Húnabyggðar sem byggðarráð vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
3. Sala eigna Húnabyggðar
Kauptilboð í eignir sveitarfélagsins við Hnjúkabyggð 27 tekin til umræðu.
Byggðarráð samþykkir kauptilboð á eign sveitarfélagsins við Hnjúkabyggð 27 (íbúð JD) upp á 16.600.000kr. og felur sveitarstjóra að láta ganga frá sölu eignarinnar.
ZAL vék af fundi og GRL kom inn á fundinn.
Byggðarráð samþykkir kauptilboð á eign sveitarfélagsins við Hnjúkabyggð 27 (íbúð 3C) upp á 23.000.000kr. og felur sveitarstjóra að láta ganga frá sölu eignarinnar.
GRL vék af fundi og ZAL kom inn á fundinn.
4. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun Húnabyggðar 2025
Lögð fram til kynningar stjórnsýsluúttekt KPMG fyrir árið 2025. Í úttektinni er nokkrar athugasemdir sem verið er að vinna með og einnig eru nokkrar athugasemdir sem þegar hafa verið leystar. Sveitarstjóra falið að bregðast við og setja af stað verkefni sem leysa umræddar athugasemdir.
5. Þjónustusamningur við Spektra
Lagður fram til kynningar þjónustusamningur við Spektra vegna WorkPoint.
6. Línustæði, eignarréttur og endurgjald
Lögð fram til kynningar skýrsla sem Torfi Jóhannsson vann fyrir SSNV um línustæði, eignarrétt og endurgjald vegna flutnings- og dreifikerfi raforkukerfisins. Skýrslan dregur fram helstu þætti sem skipta máli og gefur góða fyrirsýn yfir þau álitamál sem þessum framkvæmdum fylgja. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta setja skýrsluna á heimasíðu sveitarfélagsins.
7. Tillaga sveitarstjórnar um sérstök skilyrði vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2025-2026
Lagt fram til kynningar.
8. Umsögn SSNV um grænbók um byggðarmál
Lagt fram til kynningar.
9. Aðalfundur Norðurár
Aðalfundur Norðurár verður haldin mánudaginn 23. mars og byggðarráð felur sveitarstjóra að tilkynna framboð Húnabyggðar í stjórn byggðarsamlagsins.
10. 46. fundur fagráðs um málefni fatlaðra á NV
Lagt fram til kynningar.
