138. fundur 11. mars 2026 kl. 15:05 - 16:39
Nefndarmenn
  • Zophonías Ari Lárusson varamaður
  • Ragnhildur Haraldsdóttir aðalmaður
  • Jón Gíslason aðalmaður
  • Sverrir Þór Sverrisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Formaður byggðarráðs bar upp tillögu í upphafi fundar um að liður 2 yrði felldur niður og að í staðinn væri nýjum lið um leigusamning vegna Húnavers bætt við dagskránna undir lið 2 og nýjum lið um tómstundaakstur sem lið 13. Tillagan var samþykkt samhljóða.

Dagskrá fundarins

  1. Samningur við meistaraflokksráð Hvatar/Kormáks

Fyrir fundinum lá endanlega útgáfa samnings við meistaraflokksráð Hvatar/Kormáks sem byggðarráð samþykkir.

  1. Leigusamningur um Húnaver

Lagður fram til kynningar skammtíma leigusamningur um eignir sveitarfélagsins í Húnaveri frá 01.03-30.09.2026 og hann samþykktur samhljóða.

  1. Fráveitugjaldskrá Húnabyggðar

Nýtt sameiginlegt útboð sveitarfélaganna Húnabyggð, Húnaþing vestra og Skagafjarðar kallar á breytingar á gjaldskrá fráveitu Húnabyggðar sem byggðarráð felur sveitarstjóra að gera drög að og leggja fyrir byggðarráð.

  1. Skólaakstur Húnabyggðar

Byggðarráð felur sveitarstjóra að framlengja núverandi samninga við verktaka skólaaksturs Húnabyggðar um eitt ár að því gefnu að allir verktakar séum með tilskilin leyfi og séu tilbúnir í að framlengja samningi sínum um eitt ár.

  1. Nemendaverndarráð leikskóla Húnabyggðar

Byggðarráð samþykkir ósk leikskólastjóra stofnun nemendaverndarráðs fyrir leikskóla Húna­byggðar. Byggðarráð felur leikskólastjóra að sjá um að nemendaverndarráðið komi saman, skipti með sér verkum og haldi starfsemi ráðsins gangandi.

  1. Vinnslusamningur MMS

Lagt fram til kynningar

  1. Samningur um persónuvernd

Lagt fram til kynningar

  1. Markviss

Lögð fram til kynningar starfsáætlun skotfélagsins Markviss, byggðarráð þakkar fyrir samantektina og greinilegt er að lífleg starfsemi er í félaginu.

  1. Fundur samráðsvettvangs Sóknaráætlunar Norðurlands

Lagt fram til kynningar

  1. Bakhópur um úrgangsmál

Lagt fram til kynningar og byggðarráð vísar málinu til kynningar í umhverfisnefnd og skipulags- og samgöngunefnd.

  1. fundur fagráðs um málefni fatlaðs fólks á NV

Lagt fram til kynningar

  1. Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar

  1. Tómstundaakstur

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið og kynnti tilraunarverkefni sem verið er að setja af stað þar sem ungmennum í dreifbýli (8-10. bekk) er keyrt heim eftir lokun Skjólsins.

Getum við bætt efni þessarar síðu?