Formaður byggðarráðs lagði fram tillögu í upphafi fundar að einu máli, Umsögn um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, yrði bætt við dagskrá fundarins. Tillagan var samþykkt samhljóða og verður málið númer 17 á fundinum.
Dagskrá fundarins
- Sameiginlegt útboð vegna tæminga rotþróa
Bergþór Gunnarsson og Börkur Ottósson komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu fyrirhugað sameiginlegt útboð Húnabyggðar, Skagafjarðar og Húnaþingi vestra í tæmingu rotþróa í sveitarfélögunum. Byggðarráð samþykkir að Húnabyggð taki þátt í þessu útboði sem Consensa leiðir.
- Fráveituverkefni ársins 2026
Bergþór Gunnarsson og Börkur Ottósson komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu hugmyndir og frumkostnaðarmat framkvæmda í fráveitu vestan Blöndu á þessu ári.
- Samningur við Hvöt og Hvöt/Kormák
Fyrir fundinum láu drög að samningi við meistaraflokksráð Hvatar/Kormáks fyrir árið 2026 sem byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti og felur sveitarstjóra að skoða samningsskilyrði samkvæmt umræðu fundarins og ganga frá samningnum.
- Hugarflugsfundur um safnamál
Lagt fram til kynningar.
- Skiptayfirlýsing slitastjórnar byggðarsamlaga
Lagt fram til kynningar.
- Svarbréf vegna C1 styrkumsóknar
Lagt fram til kynningar.
- Hlutafjármiði Húnabyggðar í Bríet
Lagt fram til kynningar og sveitarstjóra falið að kanna hjá endurskoðendum sveitarfélagsins hvernig eignarhluturinn verður færður í bækur sveitarfélagsins í uppgjöri 2025.
- North Bound Gravel race 2026
Lögð fram umsókn rekstraraðila um að halda hjólaviðburðinn North Bound gravel race 2026 sem byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti.
- Erindi og ályktanir fyrir ársþing SSNV
Byggðarráð vísar umræðu um þetta til næsta fundar sveitarstjórnar Húnabyggðar.
- Samskiptastefna NV
Lagt fram til kynningar.
- Víkingurinn 2026
Lagt fram til kynningar og byggðarráð tekur jákvætt í erindið.
- Umsögn HNV til Atvinnuveganefndar
Lagt fram til kynningar.
- Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerðir 136. og 137. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
- Umsögn um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati
Lagt fram til kynningar og sveitarstjóra falið að senda inn umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
