- Nýtt velferðarsvið Húnabyggðar
Sigurður Erlingsson og Sara Lind Kristjánsdóttir komu inn á fundinn undir þessum lið og fóru yfir starfsemi nýs velferðarsviðs Húnabyggðar. Sigurður fór yfir fjármál nýja sviðsins og hvernig reksturinn lítur út í nýju sviði sveitarfélagsins. Sara fór yfir starfsemina, breytingarnar sem hafa verið í gangi undanfarið misseri og stöðu málaflokksins í byrjun nýs árs.
- Heimastjórn – fundargerð fundar 2. febrúar 2026
Fyrir fundinum lá fundargerð heimstjórnar og sveitarstjóra falið að koma á fundi með heimastjórn og verkefnahópi sem er að skipuleggja uppbygginguna í Kálfshamarsvík.
- Leikfélag Blönduóss
Fyrir fundinum láu drög að nýjum samningi við leikfélagið sem byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá í samhengi við umræður fundarins. Þá var samþykkt af byggðarráði að klára uppsetningu á drapperingum fyrir leiksviðið.
- Trúnaðarskylda og siðareglur kjörinna fulltrúa
Byggðarráð ákveður að máli sem sveitarstjórn vísaði til byggðarráðs um að kanna hvort tilefni sé til þess að fá álit nefndar á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um ætluð brot á siðareglum sveitarfélagsins sbr. 4. mgr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga verði ekki vísað til nefndarinnar en frekari bókun fundarins verði færð í trúnaðarbók.
- Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Byggðarráð felur sveitarstjóra að kanna hvort einhverjar hugmyndir sem vinna mætti með í Húnabyggð komi til greina hvað þessi framlög varðar.
- Tilboð í verkefni í Stekkjarvík
Lögð fram til upplýsingar útboðstölur vegna frágangs á yfirborði við urðunarstaðinn Stekkjarvík.
- Samgönguáætlun 2026-2040
Byggðarráð felur sveitarstjóra að skoða hvort að tilefni sé til að senda inn sérstaka umsögn fyrir hönd Húnabyggðar.
- Færsla Heilbrigðiseftirlitanna frá sveitarfélögum til ríkisins
Lagt fram til kynningar.
- Frumvarp til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum
Lagt fram til kynningar.
- Norðurslóðaverkefni
Lagt fram til kynningar og byggðarráð samþykkir að Húnabyggð taki þátt í verkefninu.
- Fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Greinargerð um endurafmörkun og endurskoðun gerðarflokkunar yfirborðsvatnshlota
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerðir 88. fundar stjórnar SSKS
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 44. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra
Lagt fram til kynningar.
