132. fundur 07. janúar 2026 kl. 15:00 - 16:04
Nefndarmenn
  • Auðunn Steinn Sigurðsson aðalmaður
  • Zophonías Ari Lárusson aðalmaður
  • Jón Gíslason aðalmaður
  • Sverrir Þór Sverrisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Dagskrá fundarins

  1. Eftirlitsskýrsla Vinnueftirlitsins

Lögð fram til kynningar drög að skýrslu Vinnueftirlitsins vegna mælinga á vinnuumhverfi slökkviliðsstöðvarinnar. Samkvæmt úttektinni skapast ekki hættulegar aðstæður við ræsingu bíla slökkviliðsins og sérstaklega ekki séu útihurðar opnar þegar ökutæki eru ræst. Bent er á að hægt sé að gera enn betur hvað varðar loftræstingu og aðferðir til þess skilgreindar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að svara drögunum miðað við umræður fundarins.

  1. Eftirlitsskýrsla frá Heilbrigðiseftirlitinu

Lögð fram til kynningar úttekt á gámasvæðinu við Aralæk, en sett er út á nokkur atriði er varðar umgengni á svæðinu og skipulag svæðisins. Byggðarráð áréttar að huga þurfi að framtíðarskipulagi gámasvæða í sveitarfélaginu og skilgreiningu lausna sem standast þær kröfur sem nú eru gerðar um þessi mál, hvort heldur sem gámasvæðum verði lokað, þau færð eða þeim breytt. Sveitarstjóra falið að afla upplýsinga um kostnað allra gámasvæða í sveitarfélaginu.

  1. Stafræn upplifun Vatnsdælu á refli

Lagt fram til kynningar að Húnabyggð hefur fengið styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra upp á 1.800.000kr. til þess að vinna að stafrænni upplifun á Vatnsdælureflinum.

  1. Bréf Samkeppniseftirlitsins til sveitarfélaga

Lögð fram til til kynningar ósk Samkeppniseftirlitsins um að upplýsa um kostnað sveitarfélagsins á árunum 2019-2025 vegna meðhöndlunar úrgangs og hvaða verktakar hafa fengið fyrir þessa þjónustu greitt. Byggðarráð felur starfandi fjármálastjóra að útbúa yfirlitið og senda það til Samkeppniseftirlitsins.

  1. Þjónusta sveitarfélaga - ný rannsókn

Lagt fram til kynningar.

  1. Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 2025/2026 - Blönduós - Húnabyggð

Byggðarráð samþykkir sérreglur sem gilda um byggðakvóta sveitarfélagsins 2025-2026, sem er um 15 tonn, og felur sveitarstjóra að senda þær inn til Matvælaráðuneytisins.

  1. Frumvarp um breytinga á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík í samráðsgátt

Lagt fram til kynningar.

  1. Breyting á 4. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 87. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?