130. fundur 11. desember 2025 kl. 15:00 - 17:07
Nefndarmenn
  • Auðunn Steinn Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnhildur Haraldsdóttir aðalmaður
  • Jón Gíslason aðalmaður
  • Sverrir Þór Sverrisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason sveitarstjóri

Í upphafi fundar lagði formaður byggðarráðs fram þá tillögu að liður 11 yrði tekinn af dagskrá. Tillagan borin upp og samþykkt samhljóða.

Dagskrá fundarins

  1. Eftirfylgni vegna öryggismála á skólalóð Húnaskóla

Þórhalla Guðbjarsdóttir og Elvar Jóhannesson komu inn á fundinn undir þessum lið þar sem farið var yfir öryggismál á skólalóð Húnaskóla fyrir ofan Íþróttamiðstöðina.

Settar hafa verið strangari kröfur um umgengni á svæðinu á skólatíma og tillaga fundarins er að skoðað verði að setja upp varnargirðingu þar sem mesta hætta skapast á því að börn fari sér að voða.

  1. Samningur við Textílmiðstöðina

Farið var yfir þá samninga sem nú gilda og þær spurningar sem byggðarráð hefur er varðar gerð nýs samnings. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

  1. Erindi frá Farskólanum

Byggðarráð samþykkir árlegt framlag til Farskólans sem er 242.000kr.

  1. Lóðarumsókn

Byggðarráð samþykkir umsókn um lóð í Brautarhvammi 6.

  1. Samningur um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 133. fundar stjórnar SSNV

Lagt fram til kynningar.

  1. Fundargerð 42. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra

Lagt fram til kynningar.

  1. Fjármögnun stafræns samstarfs 2026

Lagt fram til kynningar.

  1. Gjaldskrár Húnabyggðar

Lagt var fram til kynningar yfirlit yfir gjaldskrárhækkanir einstakra gjaldskráa Húnabyggðar 2026. Byggðarráð samþykkir að hækka taxta tímagjalds starfsmanna Þjónustumiðstöðvar um 3,8% sem gerir 9.130kr. í dagvinnu og 16.440kr. í yfirvinnu (fjárhæðir án virðisaukaskatts). Þessi hækkun er gerð til þess að tryggja að þessi gjaldskrá hækki í samræmi við verðlagsþróun.

  1. Fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2026

Eftirfarandi styrkir sem ekki eru samningsbundnir eru samþykktir og tekið tillit til í fjárhags­áætlun 2026:

 

  • Sóknarnefnd Þingeyrasóknar 1.000.000kr. vegna Þingeyrakirkjugarðs.
  • Anna Fjóla Gísladóttir og Gísli B. Björnsson 100.000kr. vegna gerð bókar um fjárréttir Íslands.
  • Stjórnmálasamtök í Húnabyggð 550.000kr. á árinu 2026. Framlagið er hærra á árinu 2026 þar sem að það er kosningaár, en framlagið hefur undanfarin ár verið 350.000kr. Framlagið er greitt samkvæmt reglum Húnabyggðar þar um.

 

Umræða varð um fjárhagsáætlun árins 2026 en engar breytingar eru lagðar til og byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og vísar henni til seinni umræðu í sveitarstjórn.

Getum við bætt efni þessarar síðu?