109. fundur 18. júní 2025 kl. 15:00 - 17:31
Nefndarmenn
  • Auðunn Steinn Sigurðsson formaður
  • Zophonías Ari Lárusson aðalmaður
  • Elín Aradóttir varamaður
  • Sverrir Þór Sverrisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pétur Arason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arason Sveitarstjóri

Formaður lagði fram tillögu um að lið 4 yrði skipt upp í tvennt og yrði liður 4 annars vegar og 5 hins vegar. Tillagan var samþykkt samhljóða.

Dagskrá fundarins

     1. Reglur Skagafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks á skrifstofu Skagafjarðar kom inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað undir þessum lið og fór yfir drög að reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks. Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.

     2. Fundargerð heimastjórnar í Skagabúð 12. júní 2025

Erla Jónsdóttir kom inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað undir þessum lið og kynnti efni fundargerðar heimastjórnarinnar. Byggingar- og skipulagsfulltrúa er falið að vinna mál 1 (Vatnsöflun fyrir Skagabúð) og 5 (Skipulagsmál) í fundargerð heimstjórnar áfram. Sveitarstjóra er falið að vinna mál 4 (Erindi frá Magnúsi Davíð Norðdahl) og 6 (Önnur mál) áfram.

Byggðarráð felur sveitarstjóra jafnframt að kanna stöðu verkefnisins um vegaframkvæmdir á Skagavegi hjá Vegagerðinni.

Að lokum felur byggðarráð sveitarstjóra að láta birta fundargerð heimastjórnar á heimasíðu Húnabyggðar.

  1. Kvörtun vegna ljósaskiltis við N1

Erindi barst frá íbúa vegna ljósaskiltis við starfsemi N1 við Norðurlandsveg. Byggðarráð vísar málinu til byggingar- og skipulagsfulltrúa til frekari meðferðar.

ZAL vék af fundi undir þessum lið vegna skyldleika við sendanda erindisins.

     4. Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlitsins vegna tjaldsvæðisins

Lögð fram skýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra varðandi tjaldsvæðið á Blönduósi. Um er að ræða nokkrar minniháttar athugasemdir sem brugðist verður við sem fyrst í samráði við rekstrar­aðila tjaldsvæðisins.

     5. Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlitsins vegna Íþróttamiðstöð

Lögð fram skýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra varðandi Íþróttamiðstöð Húna­byggðar. Engar athugasemdir komu fram.

     6. Umsóknir um nám í Tónlistarskólann á Akureyri

Byggðarráð samþykkir erindi frá Tónlistarskóla Akureyrar um kostnaðarþátttöku Húnabyggðar vegna tónlistarnáms íbúa með lögheimili í Húnabyggð. Byggðarráð felur sveitarstjóra að staðfesta svar til Tónlistarskólans á Akureyri. Jafnframt verður sótt um framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samkvæmt reglum þar um. Fært í trúnaðarbók.

     7. Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags

Umsókn um skólavist utan lögheimilis samþykkt. Fært í trúnaðarbók.

     8. Niðurfelling Vatnsneslínu - framsal girðingar – Húnabyggð

Lagt fram til kynningar. Sveitarstjóra falið að svara erindinu.

     9. Ársreikningur Farskólans-miðstöðvar símenntunar

Lagt fram til kynningar.

     10. Kynning á drögum að nýrri gjaldskrá Þjóðskjalasafns Íslands

Lagt fram til kynningar.

     11. Reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla

Lagt fram til kynningar.

     12. Erindi Félags atvinnurekenda til sveitarstjórnar

Erindi, þar sem Félag atvinnurekenda hvetur sveitarfélög eindregið til að lækka álagningar­prósentu fasteignaskatta og halda þannig sköttum á atvinnuhúsnæði óbreyttum á milli ára, lagt fram til kynningar.

     13. Félagsdómur í máli Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

     14. Fundargerð 473. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

Lagt fram til kynningar.

      15. Fundargerðir 85. og 86. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

      16. Fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?