Dagskrá og bókanir fundarins:
- Innleiðing Meta-Geta í Húnaskóla
Þórhalla Guðbjartsdóttir kom á fundinn og kynnti áform um að innleiða Meta-Geta kerfið í Húnaskóla, en um er að ræða heildstætt gæðakerfi fyrir innra mat í skólum. Byggðarráð felur skólastjóra Húnaskóla að vinna verkefnið áfram fyrir hönd Húnabyggðar.
- Umsögn um kerfisáætlun Landsnets
Umsögn Húnabyggðar vegna kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034. Húnabyggð fór vel yfir málið og lagði fram nokkuð umfangsmikla umsögn enda miklir hagsmunir fyrir íbúa Húnabyggðar og alls svæðisins í húfi varðandi framtíðar uppbyggingu orkudreifikerfisins.
- Malbikun á Ennisbraut 3
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til skipulags- og byggingarfulltrúa til frekari útfærslu.
- Hestagerði fyrir ofan Blönduós
Byggðarráð vísar málinu til skipulags- og samgöngunefndar þar sem kanna þarf skipulag svæðisins með tillit til erindisins, en mannvirkið mun vera á framtíðar útivistarsvæði þéttbýlis Húnabyggðar og þarf að passa inn í það skipulag.
- Gjaldskrá Húnabyggðar
Byggðarráð samþykkir að hækka núgildandi gjaldskrá Þjónustumiðstöðvar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta uppfæra gjaldskrána.
- Götulokun og bílastæði vegna Rabbabarahátíðar
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið um að skoða lokanir og sérstaklega að ástæða sé til þess að skilgreina bílastæði og auglýsa þau sérstaklega. Byggðaráð vísar útfærslu erindisins til skipulags- og bygggarfulltrúa Húnabyggðar. Byggðarráð tekur fram að um slíkar lokanir gilda ávkeðnar reglur og t.d. þarf að tryggja íbúum aðgengi að húsum sínum o.s.frv.
- Danskur farkennari í Húnaþingi
Byggðarráð samþykkir umsókn fræðslustjóra um að hingað komi danskur farkennari og felur fræðslustjóra að sjá um verkefnið fyrir hönd Húnabyggðar.
- Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlist Norðurlands vestra
Fyrir fundinum láu eftirlitsskýrslur vegna þéttbýlis Blönduóss, Húnaskóla og Húnavers. Byggðarráð fór yfir athugasemdirnar og sveitarstjóra er falið að bregðast við þeim athugasemdum sem ekki er búið að bregðast við.
- Styrkur valnefndar um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða
Byggðarráð fagnar að Húnabyggð fékk styrk upp á fimm milljónir frá valnefndinni til að þróa og efla almenningssamgöngur á milli byggðarlaga innan sveitarfélagsins, með áherslu á samgöngur fyrir börn og ungmenni. Byggðarráð væntir þess að þetta geri okkur kleift að útfæra lausn sem gagnast ungmennum Húnabyggðar.
- Prjónagleði
Prjónagleðin var haldin um síðustu helgi eins og verið hefur árlega nú um nokkuð langan tíma en þetta er í fyrsta skipti sem Húnabyggð sér alfarið um rekstur viðburðarins. Dagskráin var svipuð og venjulega með námskeiðum, garnatorgi, kvöldvökum o.s.frv. og mikið af gestum komu í heimókn í Húnabyggð í blíðunni og eitthvað var um að tekið væri í prjóna. Byggðarráð þakkar öllum starfsmönnum og sjálfboðaliðum sem komu að skipulagningu og framkvæmd Prjónagleðinnar og áréttað er að Prjónagleðin 2026 verður haldin helgina 5-7. júní.
- Styrkur vegna uppbyggingar í Kálfshamarsvík
Fyrir fundinum lá undirskrifaður samningur við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna uppbyggingar í Kálfshamarsvík upp á 18.520.000kr. Lagt fram til kynningar.
- Reglur Skagafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Byggðarráð frestar ákvörðun um málið og felur sveitarstjóra að óska eftir fundi með leiðtoga fatlaðs og eldra fólks í Skagafirði þannig að hægt sé að fá frekari upplýsingar um málið.
- Niðurstöður vinnustofunnar Spjörum okkur
Byggðarráð þakkar Textílmiðstöðinni fyrir vinnustofuna sem haldin var á dögunum og það efni sem unnið var upp úr þeirri vinnu. Ljóst er að ýmiskonar tækifæri liggja í frekari þróun vinnu Textílmiðstöðvarinnar og einkum sér byggðarráð tækifæri í móttöku textílúrgangs og frekari vinnslu hans í Húnabyggð. Byggðarráð bindur vonir við að áframhald verði á þessari vinnu og lýsir yfir stuðningi við þá vinnu sem fram hefur farið.
- Hveravellir - bréf, dags. 23.5.2025 f.h. Hveravallafélagsins ehf.
Fyrir fundinum lá bréf frá Lögmannsstofu Norðurlands fyrir hönd Hveravallafélagsins vegna fyrirhugaðrar auglýsingar Húnabyggðar á uppbyggingu á Hveravöllum. Byggðarráð felur sveitarstjóra að svara bréfinu og upplýsa sendanda um að auglýst lóð verði ekki sú sem fyrirhugað var upphaflega að auglýsa og er tilefni erindisins. Byggðarráð felur sveitarstjóra þess í stað að auglýsa lóð sem er utan friðlýsta svæðisins. Byggðarráð áréttar að samkvæmt skilningi Húnabyggðar er umrædd lóð sem Hveravallafélagið telur sig vera með á leigu innan þjóðlendu og einnig innan friðlýsts svæðis. Byggðarráð telur að eftir uppkvaðningu úrskurðar óbyggðanefndar um að svæðið sé þjóðlenda geti Hveravallafélagið ekki byggt rétt á eldri leigusamningum.
- Starfsleyfi Norðurár bs.
Lagt fram til kynningar.
- Fasteignamat 2026
Lagðar fram til kynningar nýjar tölur frá HMS um fasteignamat ársins 2026 en hækkunin er 10,6% að meðaltali í Húnabyggð.
- Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Lagt fram til kynningar.
- Fundargerð 36. fundar fagráðs um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
- Félagsdómur - niðurstaða í máli 12/2024
Lagt fram til kynningar.