107. fundur 21. maí 2025 kl. 15:00 - 16:05

Nefndarmenn

  • Auðunn Steinn Sigurðsson formaður
  • Zophonías Ari Lárusson aðalmaður
  • Guðmundur Haukur Jakobsson varamaður

Áheyrnarfulltrúar

  • Jón Gíslason

Starfsmaður

  • Pétur Arason sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Fundurinn var settur klukkan 15:00 og slitið 16:05.

Dagskrá fundarins

  1. Framkvæmdir við Holtabraut

Fyrirliggur að efnisskipta síðasta hluta Holtabrautar að Ennisbraut. Tilboð liggja fyrir og ákveðið hefur verið að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er J.Evensen ehf. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ganga frá samningi og setja framkvæmdir af stað.

  1. Malbiksframkvæmdir á Blönduós 2025

Fyrir fundinum lá áætlun um malbikunarframkvæmdir ársins 2025. Byggðarráð staðfestir að eftirfarandi verkefni verði farið í:

 

  • Garðarbyggð – lagfæring á horninu við Brekkubyggð 1 og Garðarbyggð 2.
  • Brekkubyggð – kaflinn frá Þingbraut að Brekkubyggð 36.
  • Hólabraut – kaflinn frá Melabraut að Þjóvegi ásamt gangstétt meðfram götunni að austanverðu.
  • Þverbraut – kaflinn á milli Húnabrautar og Mýrarbrautar.
  • Holtabraut – kaflinn frá Sunnubraut að Heiðarbraut.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma verkefnunum af stað.

  1. Framkvæmdir við Þverbraut 1

Húsfélagið við Þverbraut 1 hefur ákveðið að ráðst í viðgerðir á þaki hússins. Húnabyggð sem einn af eigendum hússins samþykkir þessar framkvæmdir fyrir sitt leiti miðað við það tilboð sem liggur fyrir. Hlutur Húnnabyggðar er 32,44% af heildarkostnaði verkefnisins. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins er u.þ.b. 17 milljónir og byggðaráð vísar gerð viðauka við fjáhagsáætlun vegna þessa til næsta sveitarstjórnarfundar.

  1. Úrgangsmál Húnabyggðar

Fyrir fundinum lá samantekt PureNorth á mótttöku heyrúlluplasts á árinu 2024. Alls sendi sveitarfélagið frá sér um 30 tonn af heyrúlluplasti sem endurunnin voru á Íslandi og sveitarfélagið dró þannig úr umhverfisáhrifum sinnar úrgagnsmeðhöndlunar sem því nemur.

  1. Umsögn um sögn um 270. mál er varðar Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Umsögnin lögð frma til kyningar og Í framhaldi af þessari umsögn mætti sveitarstjóri á fund samgöngu- og umhverfisnefndar þar sem grein var gerð fyrir umsögn Húnabyggðar.

  1. Afnám undanþágu fasteignaskatta á orkumannvirki

Fyrir fundinum lá fundargerð samtaka orkusvetiarfélaga, en á þeim fundi var kynnt sérstaklega sú vinna sem er í gangi hvað varðar breytingar á orkulögum. Þar sem málið er mikið hagsmunamál fyrir íbúa Húnabyggðar er sveitarstjóra falið að senda inn umsögn Húnabyggðar í samráðsgátt stjórnvalda en þar hafa verið birt til umsagnar áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja).

  1. Erindi frá Dansskóla Menningarfélags Húnaþings vestra

Byggðarráð hafnar beiðni um styrk þar sem sveitarfélagið hefur þegar styrkt skólann hvað varðar starfsemi hans á svæðinu. Sveitarstjóra falið að upplýsa umsækjendur um afstöðu byggðarráðs.

  1. Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

  1. Tillaga að starfsleyfi Norðurár

Lagt fram til kynningar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?