Í byrjun fundar óskaði formaður byggðarráðs eftir því að eitt mál yrði tekið af dagskrá sem var liður 8 í upphaflegri fundargerð og að einu máli yrði bætt við sem er erindi frá Elínu Aradóttur. Byggðarráð samþykkir samhljóða þessar breytingar á dagskrá fundarins.
Dagskrá fundarins
1. Fráveitumál Húnabyggðar
Sigurður Erlingsson kom inn á fundinn vegna erindis frá Jóni Gíslasyni H-lista og fór yfir kostnaðargrundvöll rotþróakerfis fráveitu Húnabyggðar. Núverandi gjöld standa undir föstum kostnaði kerfisins en ekki nýframkvæmdum.
2. Framlag til Textílmistöðvar
Jöfnunarsjóður hefur lagt inn á Húnabyggð hluta þeirrar upphæðar sem eyrnamerktur var Umhverfisakademíu á sínum tíma en ákveðið hefur verið að færa yfir í Textílmiðstöð Íslands. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samstarfssamningi milli Húnabyggðar og Textílmiðstöðvarinnar vegna þessa og jafnframt að sameina í einn samning allt samstarf aðilanna. Þegar samningurinn er tilbúinn skal hann lagður fyrir byggðarráð og í framhaldinu er hægt að greiða út styrkinn.
3. Framkvæmdir við Heimilisiðnaðarsafnið
Byggðarráð samþykkir að fara í framkvæmdir á þaki Heimilisiðnaðarsafnsins sem liggur undir skemmdum. Áætlaður verkkostnaður er um 2 milljónir og byggðaráð vísar gerð á viðauka við fjáhagsáætlun vegna þessa til næsta sveitarstjórnarfundar.
4. Girðingamál Húnabyggðar
Farið var yfir þetta mál á byggðarráðsfundi 16. apríl þar sem staðfest var að þessi vinna verður með sama sniði og síðustu ár. Þetta verklag felur í sér að að starfsmenn Húnabyggðar í samstarfi við verktaka sjá um vinnuna. Byggðarráð bendir á að í þeim tilfellum sem verktakar eru notaðir, sem er um helmingur þess kostnaðar sem til fellur, verði tryggt að verðkannanir séu gerðar og/eða að tilboða sé aflað.
5. Skipurit Húnabyggðar
Farið var yfir teikningar af skipuriti Húnabyggðar og megin línur þess samþykktar. Sveitarstjóra falið að ganga frá loka útgáfu skipuritsins þannig að leggja megi málið fyrir á næsta fundi byggðarráðs.
6. Gjaldskrá Sumarfjörs 2025
Fyrir fundinum lá gjaldskrá Sumarförs sem samþykkt var samhljóma í byggðarráði. Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að auglýsa gjaldskránna á heimasíðu sveitarfélagsins.
7. Erindi frá Hvöt
Erindi barst frá Hvöt um aðstoð við að kaupa tvö keppnismörk á Blönduósvöll. Húnabyggð hefur útvegað tvö mörk sem sett verða upp um leið og þau koma.
8. Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna – erindi frá íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd
Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar sótti um styrk fyrir hönd Húnabyggðar en svör hafa ekki fengist ennþá.
9. Útivistarsvæði Húnabyggðar – erindi frá Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd
Byggðarráð vísar því til skipulags- og byggingarfulltrúa að sjá til þess að heildstæð stefnumótun um útivistarsvæði Húnabyggðar verði hluti af nýju aðalskipulagi Húnabyggðar sem nú er í vinnslu. Sveitarstjóra falið að ákveða staðsetningu á ungbarnaleikvelli og koma því verkefni í framkvæmd sem fyrst.
10. Rabbabarahátíð
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og ákveður að styrkja framtakið um 500.000kr. Þá er jafnframt gefið leyfi fyrir notkun á Hilllebrandtshúsi og túninu þar fyrir fram að því gefnu að húsið sé ekki í útleigu á sama tíma.
11. Torfærukeppni á Húnavöku
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti erindið og leyfir þennan viðburð eins og áður hefur verið. Sveitarstjóra falið að upplýsa hestamannafélagið Neista og skofélagið Markviss um viðburðinn.
12. Fyrirspurn vegna Blöndudalsvegar
Lagt fram til kynningar erindi vegna slæms ástands vegarins í austanverðum Blöndudal. Húnabyggð hefur komið athugasemdunum á framfæri við Vegagerðina sem ber alfarið ábyrgð á þessum vegi og fengið þau svör að málið verði skoðað. Húnabyggð hefur á undaförnum misserum barist fyrir vegabótum á þessum og öðrum vegum sem tengja byggð við heiðarnar. Fyrir utan að ástand þessara vega sé algjörlega óviðunandi fyrir íbúa sem þar búa er útséð með að uppbygging orkumannvirkja á heiðunum mun aldrei verða án verulegra vegabóta á þessum vegum.
13. Þátttaka í Evrópskri Samgönguviku
Lagt fram til kynningar.
14. Fundargerð 123. fundar stjórnar SSNV
Lagt fram til kynningar.
15. Fagráð - málefni fatlaðs fólks – 35
Lagt fram til kynningar.
16. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2024
Lagt fram til kynningar.
17. Erindi frá Elínu Aradóttur
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið sem snýr m.a. að setja upp skilti við Þrístapa um ferðamannastaði í Húnabyggð o.fl. Skoðað verður hvort að mögulegt sé að hrinda þessu í framkvæmd í sumar. Sveitarstjóra falið að skoða hvaða möguleikar eru fyrir styrkumsóknum fyrir þetta verkefni.