Dagskrá fundarins
- Viðburðadagskrá ársins 2026
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir og Svanhildur Pálsdóttir komu inn á fundinn undir þessum lið.
Kristín Ingibjörg fór yfir viðburðadagatalið og þar kennir ýmissa grasa eins og venjulega. Þar má nefna:
- 5–7. júní: Prjónagleði
- 13–14. júní: Smábæjaleikar knattspyrnudeildar Hvatar.
- júní: 17. júní hátíðarhöld í Húnabyggð.
- júní: Rabarbarahátíð í gamla bænum. Ekki enn vitað hvort þessi hátíð verði haldin í sumar. Verður aðalfundur 9. maí, þá verður ákvörðun tekin.
- 16–19. júlí: Húnavaka
- júlí–1. ágúst North Bound – gravel adventure Iceland, hjólaviðburður haldinn af einkaaðilum.
- Ágúst: Vatnsdæla og Hinsegin hátíð.
- september: Sláturhátíð (í vinnslu), hópsláturgerð, tónleikar o.fl.
- 23–30. september: Í tilefni af BeActive íþróttaviku Evrópu mun Húnabyggð bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem hvetur fólk til að hreyfa sig og huga að eigin heilsu. Þar verða meðal annars ýmsir hreyfi viðburðir, heilsufarsmælingar og fræðandi fyrirlestrar um heilsu og vellíðan.
- október: Hláturhátíð (í vinnslu) ýmsir gleði tengdir viðburðir og uppistand.
- október-4. nóvember: Skúnaskrall, Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra. Samstarfsverkefni SSNV og allra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dagskrá er í vinnslu.
- Aðventan í Húnabyggð: Stefnt er að því að halda ýmsa viðburði í aðdraganda jóla í Húnabyggð. Undirbúningur hefst í haust.
Eins og sést er mikið um að vera og nóg að skipuleggja og hlakka til.
Svanhildur fór yfir skipulag Prjónagleðinnar 2026 en það hefur gengið hefur mjög vel að skipuleggja viðburinn og gríðarlegur áhugi er á viðburðinum. Prjónagleðin í ár stefnir í að vera stærsta Prjónagleðin sem haldin hefur verið. Mikill áhugi og spenna er fyrir dagskránni og námskeiðunum og ekki skemmir fyrir að heimsfræg prjónastjarna, Stephen West, heimsækir viðburðinn. Það er mikil tilhlökkun í prjónurum og allt stefnir í frábæra prjónahelgi.
- North Bound – gravel adventure Iceland
Atvinnu- og menningarnefnd vill vekja athygli á viðburði sem einkaðili er að vinna að og er hjólaviðburður sem haldin verður í sveitarfélaginu um Verslunarmannahelgina, sjá nánar á heimasíðu viðburðarins https://northboundgrvl.com/. Hjólað verður víðsvegar um sveitarfélagið og uppi á hálendinu og eru vonir bundnar við að bæði íslendingar og sérstaklega Bandaríkjamenn skrái sig til leiks en skipuleggjandinn rekur fyrirtæki sitt í Bandaríkjunum.
- Handbók HeimaHafnar
Erindi vísað til nefndarinnar frá byggðarráði.
Atvinnu- og menningarnefnd fjallaði um málið sem er mjög jákvætt og mikilvægt en á sama tíma umfangsmikið og krefst samstarfs ólíkra aðila. Atvinnu- og menningarnefnd leggur til við sveitarstjórn þar sem um langtíma þróunarverkefni er að ræða að því verði beint sérstaklega til SSNV og að skoðað verði hvort hægt sé að skoða þetta mál fyrir landshlutann í heild sinni eða hluta hans ef það þykir fýsilegra.
