34. fundur 25. nóvember 2026 kl. 10:00 - 10:30 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Börkur Þór Ottósson byggingafulltrúi
  • Þorbjörn Guðrúnarson embættismaður
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags-og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Steinkot, umsókn um niðurrif.

2611005

Lögð var fram umsókn um niðurrif mannvirkja á lóðinni Steinkot í Vatnsdal, landnúmer L241586, í Húnabyggð, dags. 28. október 2026. Umsóknin tekur til niðurrifs og förgunar veiðihúss sem staðsett er á jörðinni. Fram kemur í umsókninni að framkvæmdirnar verði unnar á vegum umsækjanda og að tilgreindir séu ábyrgðaraðilar vegna niðurrifsins.
Nefndin samþykkir framlagða umsókn um niðurrif og förgun veiðihúss á lóðinni Steinkot í Vatnsdal, L241586, samkvæmt framlögðum gögnum.

2.Æsustaðir land 1, umsókn um byggingarleyfi.

2611009

Lögð var fram umsókn frá Stefáni Stefánssyni um byggingarheimild vegna breytinga og endurbóta á íbúðarhúsi að Æsustöðum landi 1, L218583, F2138242, í Húnabyggð.
Nefndin samþykkir framlagða umsókn um byggingarheimild vegna breytinga og endurbóta á íbúðarhúsi að Æsustöðum landi 1, L218583, samkvæmt framlögðum gögnum.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?