32. fundur 16. október 2026 kl. 14:15 - 14:30 Húnabraut 5 fundarsalur
Nefndarmenn
  • Börkur Þór Ottósson byggingafulltrúi
  • Þorbjörn Guðrúnarson embættismaður
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Fálkagerði 8, umsókn um byggingarleyfi

2610008

Lögð var fram umsókn frá Geimgarði ehf. um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu endurvarpsstöðvar að Fálkagerði 8, L236869, í Húnabyggð. Fyrirhuguð framkvæmd felst í uppsetningu endurvarpsdisks í kúluhúsi á steyptri undirstöðu, en gert er ráð fyrir allt að níu diskum á lóðinni.
Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráform vegna nýbyggingar endurvarpsstöðvar að Fálkagerði 8, L236869, samkvæmt umsókn Geimgarðs ehf. og framlögðum gögnum með fyrirvara um að staðfestingu á þeim iðnmeisturum sem farið er fram á.

Fundi slitið - kl. 14:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?