25. fundur 28. janúar 2026 kl. 13:00 - 13:30 Húnabraut 5
Nefndarmenn
  • Ingvar Sigurðsson slökkviliðsstjóri
  • Börkur Þór Ottósson byggingafulltrúi
  • Elísa Ýr Sverrisdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarleyfi við Brautarhvamm 6

2601010

Lárus B Jónson fyrir hönd Blöndu ehf óskar eftir byggingarleyfi að Brautarhvammi 6 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Nefndin gerir ekki athugasemdir og felur byggingafulltrúa að veita umbeðið byggingarleyfi.

2.Umsókn um byggingarleyfi við Brimslóð 8

2503057

Tekið fyrir að nýju umsókn um byggingarleyfi við Brimslóð 8, dags. 27. mars 2025
Byggingarfulltrúi synjar umsókn um byggingarleyfi fyrir 234,6 m2 (gistihúsi) sem sótt er um að reisa á lóðinni Brimslóð 8.
Á svæðinu er ekki í gildi deiliskipulag sem skilgreinir byggingarreit, byggingarmagn eða skilyrði um bílastæði og aðkomu. Framkvæmdin kallar á heildstætt mat með tilliti til verndarsjónarmiða vegna friðaðs mannvirkis á lóðinni. Ekki liggur fyrir fullnægjandi skipulagslausn um afgreiðslu og þjónustu framkvæmdarinnar, og er því ekki unnt að veita byggingarleyfi á þessum tímapunkti.
Jafnframt er í vinnslu deiliskipulag sem miðar að því að tryggja vernd og heildstæðan skipulagsramma fyrir svæðið.

Fundi slitið - kl. 13:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?