19. nóvember 2026
Fréttir
Laugardaginn 7. nóvember var haldið upp á 150 ára afmæli Blönduóss með hátíðlegri dagskrá í Félagsheimilinu á Blönduósi. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir mættu til að fagna þessum tímamótum. Heiðursgestir dagsins voru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason.
Forsetahjónunum var vel tekið við komuna þar sem börn tóku á móti þeim og veifuðu íslenska fánanum.
Berglind Björnsdóttir stýrði hátíðardagskránni þar sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti ávarp ásamt Svavari Pálssyni sveitarstjóra, Guðmundi Hauki Jakobssyni, forseta sveitarstjórnar, og Tatjönu Latinovic, formanni Kvenréttindafélags Íslands. Nemendur Tónlistarskóla A-Hún, þau Guðjón Abem Guðjónsson og Hrafnhildur Elsa Pálmadóttir, fluttu glæsileg tónlistaratriði við undirleik Louise Price tónlistarkennara.
Að hátíðardagskránni lokinni var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð sem kvenfélögin í Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhreppi sáu um. Á meðan gestir nutu veitinganna voru sýnd myndbrot úr kvikmynd Sigursteins Guðmundssonar, Blönduós 1976, ásamt ljósmyndum frá Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu. Forsetahjónin gáfu sér jafnframt góðan tíma til að heilsa upp á gesti.
Síðar um daginn fór fram athöfn til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur þar sem forseti Íslands afhjúpaði minnisvarða um hana.
Kærar þakkir til allra sem mættu og fögnuðu 150 ára afmæli Blönduóss með okkur!
Myndir: Ólafur Jónsson
