Kjörfundur í sveitafélaginu Húnabyggð vegna sveitastjórnarkosninga þann 16.maí næstkomandi hefst klukkan 9.00 og lýkur klukkan 22.00
 
Kjörstaður er í Norðursal íþróttamiðstöðvarinnar, gengið er inn frá Melabraut.
 
Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.
 
Atkvæði verða talin á kjörstað eftir að kjörstað hefur verið lokað.
 
Kjósendum er bent á kosningavefinn www.kosning.is þar geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa.
 
Kjörskrá sveitafélagsins liggur frammi á skrifstofu sveitafélagsins fram að kjördegi.
 
Kjörstjórn Húnabyggðar
Getum við bætt efni þessarar síðu?