Athygli er vakin á að búið er að framlengja umsóknarfrest vegna Skúnaskralls – barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra.

Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fer fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er markmið hennar að börn og ungmenni á svæðinu fái að njóta fjölbreyttrar og vandaðrar menningardagskrár í sínu nærumhverfi. Nánari upplýsingar má finna á vef SSNV.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er nú til og með 24. ágúst, hér er umsóknarformið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?