09. febrúar 2026
Fréttir
Tekið hefur verið upp nýtt verklag varðandi innritun 1. bekkinga í grunnskóla og nú þurfa foreldrar að sækja um skólavist. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur komið upp Nemendagrunni og þar munu allar innritanir nemenda, sem og beiðnir um skólaskipti fara í gegn.
Hér á heimasíðu Húnabyggðar og á heimasíðu Húnaskóla er kominn hlekkur á rafræna umsókn í gegnum Ísland.is og opnaði umsóknarferlið núna 9. febrúar. Ef einhverjar spurningar vakna eða þið lendið í vandamálum hafið samband við Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra Húnaskóla, thorhalla@hunaskoli.is eða Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur fræðslustjóra, dagny@hunabyggd.is
