13. júlí 2026
Fréttir
Umhverfisverðlaun eru veitt sem viðurkenning til einstaklinga fyrir fallega og vel hirta garða og fyrir snyrtilegt umhverfi.
Á götugrillinu á Húnavöku verða veittar eftirfarandi viðurkenningar:
- Viðurkenning í þéttbýli,
- Viðurkenning í dreifbýli
Umhvefisnefnd Húnabyggðar óskar eftir ábendingum um hverjir eiga að hljóta viðurkenninguna.
Ábendingar sendist á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is fyrir 15 .júlí n.k.
