21. apríl 2026
Fréttir
Við vekjum athygli á því að umferð er bönnuð á malarvegum og slóðum upp á heiðar og afrétti sveitarfélagsins nú þegar frost er að fara úr jörðu. Þetta á t.d. við um Grímstunguheiðarveg, veginn upp hjá Kárdal og Vöglum, Hrafnabjargaveg, Rugludalsveg fyrir framan Bollastaði og á Eyvindarstaðaheiði. Íbúar eru beðnir um að aka ekki á þessum vegum og slóðum og sýna almennt tillitssemi hvað þessa hluti varðar. Skemmdir á vegum getur verið mjög dýrt að laga og takmarkað fjármagn kemur í styrkvegaframkvæmdir á hverju ári. Vegirnir eru lokaðir þangað til að annað verður tilkynnt og/eða þar til þeir eru sannarlega orðnir þurrir og ökufærir. Upplýsingar um stöðu veganna og slóðanna má fá hjá fjallskilastjórum viðkomandi fjallskiladeilda.
