Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Húnabyggð laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk. klukkan 12:00 á hádegi.

Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag frá klukkan 11:00 til 12:00 í fundarherbergi á skrifstofu Húnabyggðar, Húnabraut 5.

Framboðslistar skulu skipaðir af 9-18 fulltrúum og þeim skal fylgja listi 20-40 meðmælenda. Frambjóðendur og meðmælendur þurfa að vera kjósendur í Húnabyggð og hver meðmælandi getur einungis mælt með einu framboði. Þá skal fylgja tilkynning um hverjir séu umboðsmenn listans. Yfirkjörstjórn óskar eftir að framboðslistar nýti rafrænt meðmælakerfi á www.kosning.is til að safna og skrá meðmælum með framboðslista. Verði því ekki komið við er hægt að safna þeim á pappírsformi og skila til Yfirkjörstjórnar.

Nánari upplýsingar um framkvæmd og framboð má finna í kosningalögum nr. 112/2021 og á upplýsingavefnum www.kosning.is.

Yfirkjörstjórn Húnabyggðar

Getum við bætt efni þessarar síðu?