Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar.
Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti á aukafundi sínum þann 29. júní 2026 að ráða Svavar Pálsson í starf sveitarstjóra Húnabyggðar. Svavar tekur við starfinu 1. október 2026.
Svavar er fæddur og uppalinn á Blönduósi og þekkir því vel til sveitarfélagsins og samfélagsins. Hann lauk lagaprófi árið 1999 og hefur gegnt embætti sýslumanns á Norðurlandi eystra frá árinu 2015 en var áður sýslumaður og lögreglustjóri á Húsavík frá árinu 2009. Svavar hóf störf hjá embættunum árið 2001 og hefur því áratugareynslu af opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Svavar gegnir jafnframt formennsku í Sýslumannafélagi Íslands og hefur frá árinu 2024 verið settur sýslumaður á Austurlandi samhliða embætti sínu á Norðurlandi eystra.
Með ráðningu Svavars fær Húnabyggð öflugan stjórnanda með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, rekstri og þjónustu hins opinbera. Sveitarstjórn telur að þekking hans, reynsla og sterk tengsl við heimabyggðina muni nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn býður Svavar Pálsson hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til farsæls samstarfs í þágu íbúa og sveitarfélagsins.
