22. apríl 2026
Fréttir
Stóri plokkdagurinn er haldinn sunnudaginn 26. apríl n.k. og eru íbúar Húnabyggðar hvattir til þess að taka þátt í deginum með því að plokka hvort sem er í sínu nærumhverfi eða á vel völdum svæðum hér í Húnabyggð um leið og notið er útivistar.
Þjónustumiðstöð Húnabyggðar að Ægisbraut 1 verður opið frá kl.13:00-16:00, þar verður hægt að nálgast poka og plokkara og skila ruslapokum til baka.
Heitt á könnunni, kleinur og djús fyrir duglega plokkara í Þjónustumiðstöðinni að Ægisbraut 1 frá kl. 13-16.
Hvað er betra en góður göngutúr í góðu veðri og plokka rusl umhverfinu og samfélaginu okkar til góðs.
hér má sjá Facebook síðu Plokkdagsins.
