Dagana 21. október til 4. nóvember verður barnamenningarhátíðin Skúnaskrall – Öll saman haldin víðs vegar um Norðurland vestra. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að njóta menningar, prófa eitthvað nýtt og taka þátt í ýmsum viðburðum.
Skúnaskrall er sameiginlegt verkefni sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hátíðin hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur jafnframt stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.
Margt spennandi á dagskrá
Fjölbreyttir viðburðir verða í boði um allan landshlutann og má meðal annars nefna:
-
Páll Óskar heimsækir grunnskólana á Norðurlandi vestra og býður nemendum upp á tónlist og skemmtun.
-
Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig grunnskólanna sex í landshlutanum. Félagsmiðstöðin Friður hefur umsjón með ballinu þar sem Spritezeroclan og Úlfur Úlfur koma fram.
-
Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir nemendur á miðstigi, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins. Þar munu DJ Sakki og Partývélin sjá um fjörið.
-
Kvikmyndasýningar frá UngRIFF þar sem börn í leik- og grunnskólum fá að njóta stuttmynda.
-
Leiksýningin um Fóu og Fóu feykirófu í flutningi leikhópsins Umskiptinga.
Þá verður einnig hægt að taka þátt í dans- og leiklistarnámskeiðum, ritunarsmiðjum, myndlistarsýningum og Fab Lab námskeiðum. Bókasöfn landshlutans taka einnig þátt í hátíðinni með fjölbreyttum viðburðum.
Kynnið ykkur dagskrána
Hér er hægt að sjá dagskránna í Húnabyggð
Allar upplýsingar um hátíðina, viðburði, tímasetningar og skráningu má finna á www.skunaskrall.is. Bent er á að skráning er nauðsynleg á suma viðburði þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Húnabyggð hvetur fjölskyldur til að kynna sér það sem er í boði og nýta tækifærið til að taka þátt í skemmtilegum menningarviðburðum víðs vegar um Norðurland vestra.
