Þann 23. júní 1925 var Skáksamband Íslands stofnað í læknisbústaðnum á Blönduósi af sex skákfélögum af Norðurlandi. Í tilefni af 100 ára afmælinu snýr sambandið aftur á staðinn þar sem allt hófst – og fagnar aldarafmælinu með veglegri skákhátíð.

Föstudaginn 13. Júní verður haldið skákmót fyrir 12 ára og yngri í Félagsheimilinu á Blönduósi, skráning á staðnum.

Opna Íslandsmótið í skák (Icelandic Open) fer fram dagana 15.–21. júní í Krúttinu, áður brauðgerð en nú nýr og einstakur samkomustaður sem skapar skemmtilega umgjörð um mótið. Þar munu skákmenn af öllu landinu og erlendis koma saman til keppni við frábærar aðstæður.

Aðalfundur Skáksambands Íslands fer fram laugardaginn 14. júní í Félagsheimilinu á Blönduósi. Stjórnarfundur sambandsins verður haldinn í tengslum við viðburðinn.

Föstudaginn 20. Júní verður meistaramót Húnabyggðar haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Laugardaginn 21. júní, að lokinni síðustu umferð mótsins, fer fram glæsileg afmælishátíð með hátíðarkvöldverði þar sem aldarafmæli SÍ verður fagnað með viðhöfn.

Daginn eftir, sunnudaginn 22. júní, verður haldið Blönduós Blitz – hraðskákmót sem væntanlega verður með þátttöku þekktra erlendra meistara.

Auk keppni og formlegra funda verða ýmsir hliðarviðburðir í boði fyrir gesti og þátttakendur.

Þetta verður einstök skákveisla þar sem saga, framtíð og gleði mætast á Blönduósi – þar sem skáksagan hófst fyrir hundrað árum.

Getum við bætt efni þessarar síðu?