12. júní 2025
Fréttir
Athugið!
Vegna bilunar í tækjabúnaði hjá Terra þá seinkar rúlluplastsöfnuninni. Hún hefst á morgun, föstudaginn 13. júní. Sjá nánar hér að neðan:
Verð samkvæmt verðskrá úrgangsmála Húnabyggðar, sjá hér
Föstudaginn 13. júní Hólabær, Auðólfsstaðir, Svartárdalur, Blöndudalur, fram Svínvetningabraut og Svínadalur
Mánudaginn 16. júní Niður Ásar, Vatnsdalur og Þing
Miðvikudaginn 18. júní Gamli Engihlíðarhreppur
Plastið þarf að vera komið út úr húsi og aðgengilegt fyrir bílinn að komast að. Athugið að pressubíll tekur plastið að þessu sinni og þurfa bændur að gera ráðstafanir vegna þess.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.