05. ágúst 2026
Fréttir
Rof á ljósleiðarasambandi í Vatnsdal á morgun fimmtudaginn 6. ágúst!
Vegna tengingar nýrrar ljósleiðaralagnar í Vatnsdal verður ljósleiðarasamband rofið á morgun fimmtudag klukkan 9:00 í vestanverðum Vatnsdal.
Reiknað er með að verkefninu ljúki um 14:00 og að fyrstu samböndin komi inn um 10:30.
Athugið að við rofið rofnar líka samband við fjarskiptamöstur og því fellur símasamband einnig niður á meðan að tengivinna stendur yfir.
Við biðjumst velvirðingar á þessum truflunum en þetta er nauðsynlegt til að tengja nýja ljósleiðaralögn frá Þórdísarlundi að Flögu sem lögð hefur verið vegna framkvæmda Vegagerðarinnnar við nýja veginn.
