Laugardaginn 27. júní n.k. verður Gamli bærinn á Blönduósi iðandi af lífi þegar Rabarbarahátíðin fer fram í þriðja sinn. Hátíðin hefur á stuttum tíma fest sig í sessi sem einstakur sumarviðburður þar sem matur, menning, fræðsla, útivist og fjölskylduskemmtun fléttast saman, allt með rabarbarann í aðalhlutverki. Hátíðin er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Dagskráin er fjölbreytt og höfðar til allra aldurshópa. Í Apótekarastofunni verða þrjú spennandi fræðsluerindi þar sem meðal annars verður fjallað um ræktun þvingaðs rabarbara, rabarbara í bókmenntum og sögu hans í íslenskri menningu. Einnig verða þrjár fræðslugöngur í boði; fuglaganga, söguganga og ræktunarganga sem varpa ljósi á náttúru, sögu og gróður svæðisins. 

Hér er hægt að sjá dagskrána.

Hér er facebooksíða hátíðarinnar.

Gestakokkur hátíðarinnar í ár er Þorgerður Hlynsdóttir sem mun töfra fram gómsæta rabarbararétti og sýna meðal annars hvernig hefðbundinn brjóstsykur er búinn til. Á svæðinu verða einnig fjölmargir smáframleiðendur sem bjóða til sölu fjölbreyttar vörur.

Yngstu gestirnir fá svo sannarlega nóg fyrir sinn snúð. Rabarbaraspretturinn leiðir börn um Gamla bæinn, listasmiðja verður opin yfir daginn og börn geta tekið þátt í uppskeru rabarbara. Þá verður ljósmyndasamkeppni fyrir alla fjölskylduna þar sem markmiðið er að fanga stemninguna á hátíðinni.

Líkt og frá upphafi verður Samhjólið hluti af hátíðinni. Hjólað verður saman um fallegt umhverfi Húnavatnssýslu undir leiðsögn Önnu Lindu Sigurgeirsdóttur og Jóns Þórs Jónssonar þar sem áhersla er lögð á samveru, útivist og gleði.

Hér er hægt að skrá sig í Samhjólið.

Dagurinn endar síðan með tónlist og fjöri þegar Gaukur og Orri stíga á svið í Krúttinu og slá botninn í hátíðina með skemmtilegri kvöldstund.

Rabarbarahátíðin sækir innblástur til hinnar rómuðu rabarbarahátíðar í Wakefield á Englandi en hefur á sama tíma þróað sinn eigin karakter þar sem saga staðarins, gróður, matargerð og samfélag mynda einstaka heild. Hún er kærkomið tækifæri til að heimsækja Blönduós, njóta sumarsins og upplifa það besta sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Nánari dagskrá og upplýsingar má finna á rhubarbfest.is

Getum við bætt efni þessarar síðu?