Hundruð prjónara um allt land hafa sameinast um að prjóna og hekla litríkar afmælisveifur sem munu prýða Blönduós þegar Prjónagleðin fagnar 10 ára afmæli í byrjun nú um helgina. Hátíðin hefur á undanförnum árum þróast í einstakan samkomu handavinnufólks víðs vegar að af landinu og í ár verður afmælisstemningin í fyrirrúmi.

Í tilefni tímamótanna hafa prjónarar lagt sitt af mörkum til undirbúningsins með því að skapa hundruð handgerðra veifa sem munu setja sterkan og litríkan svip á bæinn. Verkefnið endurspeglar kraftinn og samstöðuna í íslensku prjónasamfélagi og gerir hátíðina að sameiginlegu verkefni þátttakenda víða um land.

Sérstakur gestur hátíðarinnar í ár er hinn heimsþekkti prjónahönnuður Stephen West, sem mun halda námskeið og fyrirlestur auk þess að hitta gesti á Garntorginu. Koma hans hefur vakið mikla athygli meðal íslenskra prjónara og námskeiðin seldust upp á skömmum tíma.

Í aðdraganda hátíðarinnar hefur einnig farið fram sjalasamprjón þar sem þátttakendur hafa prjónað sjöl eftir hönnun Stephen West. Samprjónið hefur skapað eftirvæntingu og tengingu meðal prjónara á Íslandi og mun setja skemmtilegan svip á hátíðina.

„Prjónagleðin snýst fyrst og fremst um fólkið, að skapa vettvang þar sem handavinnufólk hittist, deilir hugmyndum og viðheldur hefðum og býr til nýjar minningar,“ segir Svanhildur Pálsdóttir, viðburðarstjóri Prjónagleðinnar. „Það er ótrúlegt að sjá hversu margir hafa lagt sitt af mörkum fyrir þessa afmælishátíð og gert hana að sameiginlegu verkefni prjónasamfélagsins á Íslandi.“

Á dagskrá verða fjölbreytt námskeið og fyrirlestrar, Garntorg þar sem handverksfólk kynnir vörur sínar, auk fjölda opinna viðburða og samverustunda þar sem prjónagleði og heimilisleg stemning ráða ríkjum. Hátíðin hefur jafnframt jákvæð áhrif á mannlíf og atvinnulíf á Blönduósi, þar sem fjöldi gesta sækir bæinn heim þessa daga.

Hápunktar dagskrár:
• Prjónagleðin haldin í 10. sinn og afmælishátíð alla helgina
• Handprjónaðar og heklaðar afmælisveifur skreyta bæinn
• Stephen West gestur hátíðarinnar
• Sjalasamprjón sem sameinar þátttakendur um allt land
• Garntorg og fjölbreyttir viðburðir

Hvenær: 5. – 7. júní 2026
Hvar: Blönduós
Nánari upplýsingar: www.prjonagledi.is

Viðtöl og fyrirspurnir:
Svanhildur Pálsdóttir
prjonagledi@hunabyggd.is
8462582

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á handverki, samveru og sköpun að líta við og upplifa Prjónagleðina.

Getum við bætt efni þessarar síðu?