Sveitarstjórn Húnabyggðar leggur fram tillögu að endurskoðun aðalskipulags fyrir Húnabyggð sem kynnt verður á opnum kynningarfundi þriðjudaginn 7. apríl klukkan 17:00 í félagsheimilinu á Blönduósi.
Fulltrúar úr skipulagsnefnd og sveitarstjórn verða á staðnum sem og skipulagsráðgjafar sem munu fara yfir helstu atriði sem taka breytingu, hvað þetta þýðir fyrir íbúa sveitarfélagsins og hvernig almenningur geti haft áhrif og sett fram sínar skoðanir.
Allir hvattir til að mæta, kynna sér gögnin og taka þátt í umræðum um framtíð Húnabyggðar.
Gögn má finna hér í skipulagsgáttinni. Þar sem einnig skal skila inn athugasemdum og ábendingum.
Hér er hægt að skoða aðalskipulagsgögnin með stafrænum hætti, aðgengilegra en uppdrættirnir. En það eru uppdrættirnir sem gilda sé eitthvað misræmi.
Fundurinn verður einnig í streymi hér.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
