Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök áhugafólks um skólaþróun hafa með sér samstarf um að veita árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf eða aðrar umbætur í menntamálum.
Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum:
- Framúrskarandi skóla- eða menntaumbætur, ein verðlaun veitt til skóla eða annarrar menntastofnunar.
- Framúrskarandi kennari, ein verðlaun veitt til kennara.
- Framúrskarandi þróunarverkefni, ein verðlaun. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- og frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum.
- Framúrskarandi iðn- og verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- og menntastofnun .
- Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem þykja hafa skarað fram úr.
Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní 2026.
Frekar upplýsingar og tilnefningarform eru að finna hér.
