Í þessari viku byrjuðu verktakar frá Verkval að tæma rotþrær í Húnabyggð. Þeir verða á ferðinni næstu daga og munu jafnframt staðsetja rotþrær með GPS hnitum. 

Skv. gjaldskrá Húnabyggðar er lagt á árlegt fráveitugjald sem stendur undir tæmingu þeirra rotþróa sem eru í eigu íbúa. Slíkar tæmingar eru að jafnaði á þriggja ára fresti.

Getum við bætt efni þessarar síðu?