05. nóvember 2026
Fréttir
Húnabyggð auglýsir framtíðarstarf konu við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Um er að ræða starf sem er unnið í vaktavinnu sem felur meðal annars í sér öryggisgæslu, baðvörslu, afgreiðslu og almenna þjónustu við gesti Íþróttamiðstöðvarinnar.
Nánari upplýsingar um starfið má sjá í meðfylgjandi auglýsingu en einnig gefur Katrín Benendiktsdóttir nánari upplýsingar í síma 455-4700 eða á katrin@hunabyggd.is
