Laust er til umsóknar 100% starf í mötuneyti Húnabyggðar, staðsettu í Húnaskóla. Starfið felst í aðstoð við stjórnenda mötuneytis hvað varðar rekstur og eldamennsku í mötuneytinu.

Í góðu samráði og samstarfi við menntastofnanir og skrifstofu sveitarfélagsins spilar mötuneytið lykilhlutverk í þróun og útfærslu lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Lögð er áhersla á að vinna með einfaldan, ferskan og hefðbundin íslenskan mat og matvæli. 

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn störf í mötuneyti
  • Aðstoð við Innkaup og birgðastýringu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði matreiðslu og/eða matargerðar
  • Reynsla af störfum í mötuneyti eða veitingastöðum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sköpunargleði
  • Samskiptahæfileikar eru mikilvægir
  • Reynsla af innkaupum og birgðastjórnun æskileg
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Gott er að umsókn fylgi yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf. 

Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

 

Umsóknum skal skila til  Magnúsar Sigurjónssonar, magnus@hunabyggd.is eða Dagnýjar Rósu Úlfarsdóttir, dagny@hunabyggd.is sem gefa nánari upplýsingar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?