10. júlí 2026
Fréttir
Laust er til umsóknar 100% starf í mötuneyti Húnabyggðar. Starfið felst í aðstoð við stjórnenda mötuneytis hvað varðar rekstur og eldamennsku í mötuneyti Húnaskóla og leikskóla Húnabyggðar. Starfstími miðast við skóladagatal leikskóla Húnabyggðar.
Áætlaður fjöldi daglegra gesta er um 350, þar af um 250 börn og tæplega 100 fullorðnir.
Lögð er áhersla á að vinna með einfaldan, ferskan og hefðbundin íslenskan mat og matvæli.
Áhugasöm geta kynnt sér starfið betur og eru hvött til að sækja um á Alfreð.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf við byrjun skólaárs eða sem fyrst í ágúst.
