Húnaskóli er með eftirfarandi stöður auglýstar á alfred.is. Vinsamlega kynnið ykkur og látið berast.

Heimilisfræðikennari

https://alfred.is/starf/heimilisfraedikennari-i-hunaskola-2

Skólaliði á Skóladagheimili - lengdri viðveru

https://alfred.is/starf/skolalidi-a-skoladagheimili-hunaskola-lengdri-vidveru

Stuðningsfulltrúi

https://alfred.is/starf/studningsfulltrui-i-hunaskola-2

Umsjónarkennari á miðstigi

https://alfred.is/starf/umsjonarkennari-a-midstigi-i-hunaskola

 

Umsóknum þar sem fram kemur hvaða starf er verið að sækja um skal skilað ásamt kynningarbréfi og ferilskrá í tölvupósti á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra, thorhalla@hunaskoli.is fyrir tilgreindan umsóknarfrest (mismundandi eftir störfum). Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 455-4750 eða 892-4928. Umsóknarfrestur er til 24. júní 2025.

Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (KÍ, Kjölur eða Samstaða).

Getum við bætt efni þessarar síðu?