Af gefnu tilefni vill Húnabyggð minna hundaeigendur á að lausaganga hunda er óheimil í þéttbýli sveitarfélagsins. Þetta á einnig við um gámasvæðið að Efstubraut 5 á Blönduósi.

Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í Húnabyggð, 2. gr., f-lið, er óheimilt að láta hunda ganga lausa innan marka þéttbýlis, að undanskildum nytjahundum við störf. Hundar skulu vera í taumi utanhúss og eigendum ber að hirða upp eftir þá.

Reglunum er ætlað að tryggja öryggi og vellíðan íbúa, vegfarenda og dýra ásamt því að stuðla að góðri umgengni í sveitarfélaginu.

Húnabyggð hvetur alla hundaeigendur til að sýna ábyrgð, virða gildandi reglur og sýna öðrum tillitssemi.

Sýnum tillitssemi og stuðlum saman að öruggu og snyrtilegu umhverfi fyrir alla.

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?