Húnabyggð auglýsir laus til umsókna störf í mötuneyti og stoð- og stuðningsþjónustu. Við leitum að fólki sem hefur frumkvæði og er tilbúið að vinna með einstaklingum á öllum aldri. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Annars vegar er um að ræða störf í mötuneyti sem rekið er í húsnæði Húnaskóla og snúa að almennum eldhússtörfum, matartilbúningi og frágangi. Menntun og/eða reynsla á sviði matreiðslu og/eða matargerðar er æskileg.

Hins vegar er um að ræða störf hjá velferðarsviði í stoð- og stuðningsþjónustu sem snúa að aðstoð og stuðningi við einstaklinga, unga sem aldna. Menntun og/eða reynsla á sviði velferðarmála (t.d. uppeldisfræði, félagsfræði, sálfræði) er æskileg. Þá er æskilegt að viðkomandi hafi bílpróf.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veita Dagný Rósa Úlfarsdóttir, dagny@hunabyggd.is eða Sara Lind Kristjánsdóttir, sara@hunabyggd.is

Umsóknarfrestur er til 1. október og hægt er að skila inn umsóknum hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?