Sveitarfélagið Húnabyggð vinnur að gerð áætlunar um lagningu á ljósleiðara inn á öll lögheimili á Blönduósi sem ekki eru nú þegar tengd við ljósleiðarakerfi. Áformað er að fram­kvæmdir hefjist á vormánuðum og ljúki fyrir árslok 2026. Framkvæmdin er unnin í samræmi við skilmála fjarskiptasjóðs um styrkta ljósleiðaravæðingu lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli 2024-2026. Með vísan í þá skilmála er markaðsaðilum hér með gefinn kostur á að upplýsa sveitarfélagið um sannanleg áform um að koma á ljósleiðaratengingu fyrir fyrirtæki og heimili á Blönduósi á næstu þremur árum. Óskað er eftir því að upplýsingarnar berist skrifstofu sveitarfélagsins, Húnabraut 5, 540 Blönduósi fyrir 3. mars 2026. Best er að koma þessum upplýsingum á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is.

Skilmála fjarskiptasjóðs má finna hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?