05. nóvember 2025
Fréttir
Húnabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Húnabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.
Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Húnabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Húnabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 15.desember 2025 - 15.febrúar 2026.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Húnabyggð.
Skráningarfrestur er til og með 25.nóvember 2025
Nánari upplýsingar og skráning er á netfanginu katrin@hunabyggd.is
