Nýr rekstraraðili, Diddi Frissa, hefur tekið við á Húnavöllum og er að keyra starfsemina í gang í þessum töluðu orðum. Didda langar að bjóða íbúum Húnabyggðar í heimsókn  föstudaginn 16. maí kl. 16:00 og bjóða upp á súpu í leiðinni. Gamlir nemendur og starfsmenn Húnavallaskóla eru boðnir sérstaklega velkomnir. Diddi hefur marga fjöruna sopið í gegnum tíðina og var m.a. í sveit í Vatnsdal og móðir hans bjó á Blönduósi. Einar Valgeir Arason frændi Didda kemur og rekur ættir þeirra hingað norður.

Endilega komið við í góða veðrinu og heilsið upp á nýjan leigutaka Húnavalla!

Getum við bætt efni þessarar síðu?