Húnabyggð leiðandi sveitarfélag í félagsþjónustu
Byggðasamlagi Félags- og skólaþjónustu A- Hún. hefur verið slitið og Húnabyggð tekið við leiðandi hlutverki í félagsþjónustu fyrir íbúa Húnabyggðar og Skagastrandar.
Í kjölfar samþykkta sveitarstjórna Húnabyggðar og Skagastrandar og staðfestingar félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hefur byggðasamlagi Félags- og skólaþjónustu A-Hún. verið formlega slitið. Samhliða því hefur verið undirritaður samningur þar sem Húnabyggð tekur við hlutverki leiðandi sveitarfélags í félagsþjónustu fyrir íbúa beggja sveitarfélaga. Samningurinn er gerður á grundvelli 96. gr. sveitarstjórnarlaga og tekur til almennrar félagsþjónustu samkvæmt lögum nr. 40/1991. Með samningnum annast Húnabyggð framkvæmd þjónustunnar, þar á meðal félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, stuðningsþjónustu, málefni aldraðra og húsnæðismál.
Þjónustan verður veitt á jafnræðisgrundvelli og byggir á mati á þjónustuþörf. Íbúar beggja sveitarfélaga geta leitað til félagsþjónustu Húnabyggðar á meginstarfsstöð í Húnabyggð, símleiðis og með því að senda tölvupóst.
Markmið breytingarinnar er að tryggja samþætta og heildstæða félagslega þjónustu, stuðla að hagræðingu í rekstri og styrkja faglegt samstarf sveitarfélaganna. Sveitarfélagið Skagaströnd mun áfram taka þátt í stefnumótun og samráði um þjónustuna í gegnum áheyrnarfulltrúa í velferðarnefnd Húnabyggðar og með reglulegum samráðsfundum.
Málaflokki fræðsluþjónustu verður sinnt af hvoru sveitarfélagi fyrir sig.
Barnaverndarþjónusta fyrir Húnabyggð og Skagaströnd er áfram veitt í sameiginlegu samstarfi sveitarfélaganna innan Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands með Skagafjörð sem leiðandi sveitarfélag.
Þjónusta við fatlað fólk er áfram veitt í sameiginlegu samstarfi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra með Skagafjörð sem leiðandi sveitarfélagi.
Hvað þýðir þetta fyrir mig sem þjónustuþega?
- Þú heldur áfram að fá þjónustu líkt og áður – t.d. félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð og stuðning samkvæmt mati á þjónustuþörf.
- Þjónustan er nú veitt af félagsþjónustu Húnabyggðar, en hún er fyrir íbúa beggja sveitarfélaga.
- Þú getur haft samband við félagsþjónustu í gegnum síma, tölvupóst eða með því að mæta á starfsstöð í Húnabyggð.
- Ef þörf er á, getur starfsmaður einnig komið til Skagastrandar.
- Þjónustan verður áfram veitt á jafnræðisgrundvelli og með virðingu fyrir þínum þörfum.
- Þú þarft ekki að gera neinar breytingar sjálf/ur/t – við höldum utan um öll mál og tryggjum áframhaldandi þjónustu.
- Ef þú ert í þjónustu nú þegar, heldur hún áfram án truflana.
Málaflokkar Velferðarsviðs Húnabyggðar eru:
Félagsleg ráðgjöf
Fjárhagsaðstoð
Stuðningsþjónusta
Málefni aldraðra
Húsnæðismál og sérstakar húsnæðisbætur
Málefni einstaklinga með áfengis- og/eða vímuefnavanda
Málefni innflytjenda
Starfsfólk Velferðarsviðs Húnabyggðar:
Sara Lind Kristjánsdóttir Félagsmálastjóri sara@felahun.is
Ásta Þórisdóttir ráðgjafi asta@felahun.is
Sigrún Líndal Þrastardóttir ráðgjafi sigrun@felahun.is
Valgerður Hilmarsdóttir ráðgjafi valgerdur@felahun.is
Velferðarsvið Húnabyggðar
Húsnæði HSN, Flúðabakka 2
Sími: 455- 4170