Sveitarfélagið Húnabyggð hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Viðurkenningin telst staðfesting á þeirri vegferð sveitarfélagsins að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og hefur frá árinu 2019 hvatt fyrirtæki, opinbera aðila og sveitarfélög til að stuðla að fjölbreyttari og jafnari stjórnun.

Sveitarfélagið Húnabyggð þakkar Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna en umfram allt frábæru starfsfólki sveitarfélagsins, sem leggur sitt af mörkum til að skapa þennan árangur.

Getum við bætt efni þessarar síðu?