Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða. Að þessu sinni var 25 milljónum króna úthlutað til fjögurra verkefna, þar á meðal til Húnabyggðar. Alls bárust átta umsóknir um styrki að fjárhæð tæpar 74 milljónir. Um er að ræða aðgerð A.10 á byggðaáætlun, Almenningssamgöngur milli byggða. Markmið með aðgerðinni að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja við ýmsa sérakstursþjónustu.

Húnabyggð fær fimm milljónir króna í styrk til verkefnis sem nefnist Brú milli byggða – aðgengi barna að íþróttum. Verkefnið byggir á auknu samstarfi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra á sviði íþrótta, með áherslu á hópíþróttir, og snýr að því að samræma betur framboð íþróttastarfs milli byggðarlaga. Í samstarfi við íþróttafélögin Hvöt á Blönduósi og Tindastól á Sauðárkróki á að samræma æfingatíma, ferðaskipulag og nýtingu aðstöðu þannig að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að íþróttastarfi óháð búsetu.

Hin verkefnin sem fengu styrkt er almenningssamgöngur á milli Djúpavogs og Egilsstaða, tómstundaakstur í Þingeyjarsveit og bætt tenging innanbæjarstrætó Reykjanesbæjar við Landsbyggðarstrætó. Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?