Girðingarviðhald á afréttum og innheimta kostnaðarhlutdeildar
Síðustu þrjú sumur hafa verið afar afdrifarík í girðingarvinnu á heiðum sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefur séð um viðhald og endurnýjun girðinga milli afrétta og viðkomandi jarða og hefur veruleg vinna verið lögð í þennan málaflokk. Sumarið 2025 var þar engin undantekning og raunar metár hvað umfang framkvæmda varðar.
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins hafa unnið að verkefnunum ásamt vel völdum verktökum. Girðingar hafa verið endurnýjaðar og lagfærðar á Auðkúluheiði, Víðidalsfjalli og Haukagilsheiði, Grímstunguheiði, Rugludalshólfi, Skagaheiði og Eyvindarstaðarheiði, ásamt öllum þeim kostnaði sem slíkum framkvæmdum fylgir.
Samkvæmt 6. gr. girðingarlaga getur meirihluti landeigenda komið nauðsynlegum girðingarframkvæmdum í verk og krafist þess að eigendur hlutaðeigandi jarða greiði framlag sem nemur allt að 20% af kostnaði verksins. Viðkomandi fjallskiladeildir og sveitarstjórn hafa talið þessar framkvæmdir nauðsynlegar og komið þeim í farveg.
Starfsfólk sveitarfélagsins hefur tekið saman heildarkostnað vegna framkvæmda á viðkomandi afréttum og skipt honum milli þeirra jarða sem land eiga að afréttunum.
Bændur og aðrir jarðareigendur mega því eiga von á reikningi frá Húnabyggð vegna 20% kostnaðarhlutdeildar sinnar í girðingarvinnu sem unnin var sumrin 2023, 2024 og 2025. Krafa verður stofnuð í heimabanka með gjalddaga 31. ágúst 2026 og eindaga 1. október 2026.
Þeir sem óska eftir afriti af reikningi eða frekari upplýsingum geta haft samband við Húnabyggð með tölvupósti á hunabyggd@hunabyggd.is eða í síma 455-4700.
Einnig var unnið að frekari girðingarframkvæmdum á heiðum nú í sumar og er stefnt að því að senda reikninga vegna þeirrar kostnaðarhlutdeildar strax í vetur. Sveitarfélagið vill forðast að slíkur kostnaður safnist upp með þeim hætti sem áður hefur verið. Nú eru betri forsendur til staðar til að afgreiða þessi mál jafnóðum, enda fer mun minni tími og vinna í verkefni tengd sameiningu sveitarfélagsins og slitum byggðasamlaga sem einkenndu fyrstu ár Húnabyggðar.
