Vegna yfirstandandi framkvæmda við nýjan búsetukjarna að Sunnubraut er töluvert um vinnuvélar og umferð tengda framkvæmdunum á svæðinu.

Brák er byggingaraðili og Búðingur ehf. er yfirverktaki framkvæmdanna.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni svæðisins.

Húnabyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þakkar íbúum og vegfarendum fyrir sýndan skilning og þolinmæði.

 

Mynd: Valli Húnabyggð

Getum við bætt efni þessarar síðu?