11. maí 2026
Fréttir
Sameiginlegur framboðsfundur í Húnabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 verður haldinn í Húnaveri miðvikudagskvöldið 13. maí og hefst kl. 20:00, en húsið opnar kl. 19:00. Þá þegar verður gúllassúpa "ala Freyja" í pottunum ásamt tilheyrandi fyrir litlar 2.700 krónur. Vinsamlegast pantið í súpuna í skilaboðum til Freyju eða Einars. (Einar Kolbeinsson/Freyja Ólafsdóttir).
Dagskrá.
1. Kynning framboða
2. Umræður og spurningar
3. Lokaorð framboða
4. Notaleg tónlist og samvera svo sem hver og einn kýs.
1. Kynning framboða
2. Umræður og spurningar
3. Lokaorð framboða
4. Notaleg tónlist og samvera svo sem hver og einn kýs.
Komum saman, kynnum okkur málin, rýnum til gagns, þéttum raðirnar og gleðjumst. Endilega deilið þessu og látið berast sem víðast!
Áfram Húnabyggð!
Hér er hægt að sjá viðburðinn á facebook.
