Ertu með hugmynd að skemmtilegum viðburði, menningarverkefni, einhverju sem gæti lífgað upp á samfélagið okkar eða jafnvel nýrri vöru eða þjónustu?
Við hvetjum alla íbúa Húnabyggðar til að kynna sér styrki úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra!

Uppbyggingarsjóður SSNV styrkir fjölbreytt verkefni á sviði menningar, samfélagsmála, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki geta sótt um og verkefnin þurfa alls ekki að vera stór eða flókin.

Umsóknarfrestur er til 21. október 2026 kl. 14:00.

Nánari upplýsingar og umsóknir má finna á:
https://www.ssnv.is/uppbyggingarsjodur

Starfsfólk SSNV er einnig tilbúið að aðstoða við mótun hugmynda og umsóknarskrif. Það er því um að gera að hafa samband, jafnvel þótt hugmyndin sé enn á byrjunarstigi!
Við hvetjum íbúa til að nýta þetta tækifæri. Kannski er hugmyndin þín einmitt næsta skemmtilega verkefnið sem verður að veruleika hér í Húnabyggð!
Getum við bætt efni þessarar síðu?